Leigufyrirkomulag:
- Þegar pantað er í gegnum síðuna þá þarf ekki að greiða fyrr en varan er afhent en þá þarf að greiða fyrir fyrsta mánuðinn með greiðslukorti og gefa upp kortaupplýsingar.
- Uppgefnar kortaupplýsingar verða notaðar til að rukka mánaðargjald fyrir hvern mánuð þar til leigu er sagt upp.
- Eftir að pöntun berst þá reynum við eftir fremsta megni að afhenda vöruna næsta virka dag.
- Rentaparty ehf rukkar ekkert fyrir að koma með vöruna til leigutaka ef leigutaki skuldbindur sig í 6 mánuði og uppgefið heimilisfang er á höfuðborgarsvæðinu.
- Ef leigutími er ekki bundinn í sex mánuði þá rukkar Rentaparty frá 8.900 kr. fyrir uppsetningu á höfuðborgarsvæðinu.
- Sé uppsetning utan höfuðborgarsvæðisins þá rukkar Gameroom 189 kr. fyrir hvern ekinn kílómetra.
- Leigutími er alltaf að lágmarki 4 mánuðir.
Leigutími
- Leigutíminn er ótímabundinn og leigutaki þarf að segja leigunni upp í gegnum tölvupóst á info@rentaparty.is.
- Eftir að leigu hefur verið sagt upp kemur starfsmaður frá Rentaparty innan 3 daga að sækja vöruna nema um annað sé samið.
- Rentaparty rukkar frá 7.500 kr. fyrir að sækja vöruna þegar leigunni hefur verið sagt upp .Sé heimilisfang leigutaka utan höfuðborgarsvæðins þá rukkar Gameroom 189 kr. fyrir hvern ekinn kílómetra.
Ábyrgð/tryggingar:
- Ábyrgð og áhætta á leigðum æfingatækjum/vörum færist yfir á viðskiptavin þegar varan hefur verið afhent á þeim stað sem leigutaki skráði þegar bókun var framkvæmd.
- Eftir að ábyrgð á vöru hefur færst yfir á viðskiptavin þá er viðkomandi ábyrgur fyrir öllu tjóni og því ef varan/búnaðurinn glatast.
- Þrifagjald vara skal vera hrein að leigutíma liðnum. Ef því er ekki sinnt skal greiða þrifagjald – 8.900 kr.
Vörukaup
- Vörur er hægt að sækja í verslun okkar á Vesturvör 32B. Sé valið að sækja í verslun er hægt að nálgast vöruna um leið og staðfesting berst með tövlupósti, en þó aðeins á opnunartíma.
- Sé þess óskað að fá vörur sendar gilda sömu skilmálar og ef leigu er að ræða.
- Rentaparty tekur ábyrgð á vörum sem seldar eru á netverslun Gameroom.is sé um galla að ræða. Takist ekki að lagfæra vöru mun rentaparty afhenda afhenda kaupanda sambærilega, eða endurgreiða sé þess ekki kostur. Almennt er að hámarki reynt að laga viðkomandi vöru tvisvar áður en um afhending nýrrar vöru eða endurgreiðslu er að ræða. Ábyrgð nær ekki til bilana og áverka vegna vanrækslu og illrar meðferðar.
Allur texti og verð á heimasíðu Gameroom eru birt með fyrirvara um breytingar.
